Fimmta árið í röð er TRS á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi. Að þessu sinni eru 624 fyrirtæki á Íslandi á listanum, sem er um 1,7% allra fyrirtækja á landinu á hlutafélagaskrá, samanborið við 682 fyrirtæki á síðasta ári.
Á Suðurlandi eru 28 fyrirtæki á listanum en aðeins fimm á Selfossi.
TRS er mjög stolt af þessari viðurkenningu og þakkar hana góðu starfsfólki og tryggum viðskiptavinum. Viðurkenning sem þessi endurspeglar þann stöðugleika sem við viljum standa fyrir í allri okkar þjónustu.

 

Framúrskarandi fyrirtæki 2016