Google AdwordsGoogle AdWords er þægileg leið til að auglýsa á netinu. Auglýsingin þín birtist með þeim leitarorðum sem þú skilgreinir og þú greiðir aðeins fyrir hvern smell sem þú færð á auglýsinguna. Auðvelt er að stilla til hversu háum fjárhæðum þú vilt eyða á hverjum degi í þína auglýsingu. Sé hámarkinu náð yfir daginn hverfur auglýsingin einfaldlega af Google og fer aftur í birtingu næsta dag.

Á einfaldan hátt getur þú látið auglýsingarnar birtast fyrir notendur á ákveðnum svæðum ákkúrat á þeirri stundu þegar verið er að leita að vöru eða þjónustu. Hægt er að fylgjast vel með tölfræði yfir birtingu auglýsinga og þannig betrumbæta eftir því sem tíminn líður. Ferlið við vinnuna er í raun endurtekið reglulega, texta breytt og ýmsar lagfæringar gerðar eftir ákveðið tímabil þar sem miðað er við tölfræði birtinga og hversu oft er smellt á auglýsinguna.

Við veitum ráðgjöf varðandi Google AdWords og aðstoðum þig þannig að auglýsingin þín nái árangri.