TRS ehf. https://www.trs.is/ Ein heild í þína þágu Mon, 13 Nov 2023 13:17:24 +0000 is hourly 1 OK festir kaup á upplýsingatæknihluta TRS https://www.trs.is/ok-festir-kaup-a-upplysingataeknihluta-trs/ Mon, 13 Nov 2023 12:55:24 +0000 https://www.trs.is/?p=8143 Undirritaður hefur verið samningur um kaup OK á upplýsingatæknifyrirtækinu TRS á Selfossi. Bæði félög sérhæfa sig í þjónustu í upplýsingatækni og búnaðarsölu en með kaupunum fjölgar OK starfsstöðvum sínum og styrkir sig enn frekar sem leiðandi þjónustu- og rekstaraðili tölvukerfa. Þjónusta TRS við rafmagns- og fjarskiptakerfi er ekki hluti af kaupunum og verður sá hluti starfræktur […]

The post OK festir kaup á upplýsingatæknihluta TRS appeared first on TRS ehf..

]]>

Undirritaður hefur verið samningur um kaup OK á upplýsingatæknifyrirtækinu TRS á Selfossi. Bæði félög sérhæfa sig í þjónustu í upplýsingatækni og búnaðarsölu en með kaupunum fjölgar OK starfsstöðvum sínum og styrkir sig enn frekar sem leiðandi þjónustu- og rekstaraðili tölvukerfa. Þjónusta TRS við rafmagns- og fjarskiptakerfi er ekki hluti af kaupunum og verður sá hluti starfræktur í nýju félagi, TRS raf ehf.

Gunnar Zoëga forstjóri OK: „Við viljum bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og nálægð okkar við viðskiptavini skiptir þar máli. TRS hefur haldið uppi öflugri þjónustu, einkum á Suðurlandi þar sem uppbygging hefur verið mikil síðustu misserin og þykir okkur spennandi að taka þátt í þeirri vegferð.“

Gunnar Bragi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri TRS: “ TRS hefur sinnt þjónustu við upplýsingakerfi í tæpa þrjá áratugi með góðum árangri. Við sjáum mikil tækifæri fyrir okkar starfsfólk og viðskiptavini með sölu TRS til OK og höfum fulla trú á að þeim muni farnast vel.“

Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

The post OK festir kaup á upplýsingatæknihluta TRS appeared first on TRS ehf..

]]>
TRS ehf. „Framúrskarandi fyrirtæki“, 12 ár í röð https://www.trs.is/trs-ehf-framurskarandi-fyrirtaeki-12-ar-i-rod/ Fri, 27 Oct 2023 08:04:44 +0000 https://www.trs.is/?p=8128 CreditInfo hefur nú, tólfta árið í röð, tilkynnt að TRS ehf. falli í flokk „Framúrskarandi fyrirtækja“. Við erum afar stolt af því að vera valin enn eitt árið sem „Framúrskarandi fyrirtæki“ en það eru aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja, eða um 1000 fyrirtæki sem lenda í þeim úrvalsflokki. TRS ehf. hefur verið á þessum lista […]

The post TRS ehf. „Framúrskarandi fyrirtæki“, 12 ár í röð appeared first on TRS ehf..

]]>

CreditInfo hefur nú, tólfta árið í röð, tilkynnt að TRS ehf. falli í flokk „Framúrskarandi fyrirtækja“.

Við erum afar stolt af því að vera valin enn eitt árið sem „Framúrskarandi fyrirtæki“ en það eru aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja, eða um 1000 fyrirtæki sem lenda í þeim úrvalsflokki.

TRS ehf. hefur verið á þessum lista öll árin frá árinu 2012, en það eru aðeins 74 fyrirtæki sem eru í þeim hópi.

Það er ekki sjálfgefið að verða valin sem framúrskarandi fyrirtæki, heldur byggist það á traustum og öflugum rekstri, sem gerist ekki nema með öflugum og samheldnum hópi starfsmanna og tryggum viðskiptavinum.

The post TRS ehf. „Framúrskarandi fyrirtæki“, 12 ár í röð appeared first on TRS ehf..

]]>
Undirritun samnings við Sveitarfélagið Árborg https://www.trs.is/undirritun-samnings-vid-sveitarfelagid-arborg/ Fri, 23 Dec 2022 12:47:51 +0000 https://www.trs.is/?p=8105 Nýverið var undirritaður samningur um hýsingu og rekstur á tölvukerfum Sveitarfélagsins Árborgar við TRS. Samningur þessi er gerður að undangengnum útboði sem Ríkiskaup annaðist og var TRS með lægsta tilboðið af fjórum aðilum. Frá TRS Karl Ó. Kristbjarnarson og Gunnar B Þorsteinsson , frá Árborg Fjóla Kristinsdóttir og Sigríður M. Björgvinsdóttir.

The post Undirritun samnings við Sveitarfélagið Árborg appeared first on TRS ehf..

]]>

Nýverið var undirritaður samningur um hýsingu og rekstur á tölvukerfum Sveitarfélagsins Árborgar við TRS.

Samningur þessi er gerður að undangengnum útboði sem Ríkiskaup annaðist og var TRS með lægsta tilboðið af fjórum aðilum.

Frá TRS Karl Ó. Kristbjarnarson og Gunnar B Þorsteinsson , frá Árborg Fjóla Kristinsdóttir og Sigríður M. Björgvinsdóttir.

The post Undirritun samnings við Sveitarfélagið Árborg appeared first on TRS ehf..

]]>
TRS hlýtur Jafnlaunavottun https://www.trs.is/trs-hlytur-jafnlaunavottun/ Fri, 04 Nov 2022 09:00:14 +0000 https://www.trs.is/?p=8085 TRS ehf. er í hópi þeirra 413 fyrirtækja sem hafa hlotið jafnlaunavottun frá Jafnréttisstofu samkvæmt jafnlaunastaðinum IST 85:2012.  Vottunin er mikilvægt skref í að uppfylla markmið um jafnréttis- og jafnlaunastefnu fyrirtækisins. Markmið TRS er að allt starfsfólk, óháð kyni, skuli njóta jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að engin ómálefnalegur […]

The post TRS hlýtur Jafnlaunavottun appeared first on TRS ehf..

]]>

TRS ehf. er í hópi þeirra 413 fyrirtækja sem hafa hlotið jafnlaunavottun frá Jafnréttisstofu samkvæmt jafnlaunastaðinum IST 85:2012.  Vottunin er mikilvægt skref í að uppfylla markmið um jafnréttis- og jafnlaunastefnu fyrirtækisins.

Markmið TRS er að allt starfsfólk, óháð kyni, skuli njóta jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að engin ómálefnalegur launamunur sé til staðar.

Innleiðing á jafnlaunakerfinu er samkvæmt stjórnendum TRS mjög jákvætt skref í þróun fyrirtækisins og hefur leitt til mun faglegri og markvissari vinnubragða við mat launa í fyrirtækinu.

BSI á Íslandi framkvæmdi úttektina í september síðastlinum og hlaut TRS vottunina í kjölfarið.  Þetta er annar staðalinn sem TRS hlýttur vottun samkvæmt, en fyrirtækið er einnig vottað skv. alþjóðlega upplýsingaöryggistaðlinum ISO/IEC 27001:2013.

The post TRS hlýtur Jafnlaunavottun appeared first on TRS ehf..

]]>
TRS ehf. „Framúrskarandi fyrirtæki“, ellefta árið í röð https://www.trs.is/trs-ehf-framurskarandi-fyrirtaeki-ellefta-arid-i-rod/ Thu, 20 Oct 2022 09:48:01 +0000 https://www.trs.is/?p=8065 CREDITINFO hefur nú, ellefta árið í röð, tilkynnt að TRS ehf. falli í flokk „Framúrskarandi fyrirtækja“  TRS ehf. er í hópi um 2% íslenskra fyrirtækja sem falla í þennan flokk þetta árið, en það gera einungis tæplega 900 fyrirtæki af um 40.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi. TRS er nr. 164 í hópi meðalstórra fyrirtækja á […]

The post TRS ehf. „Framúrskarandi fyrirtæki“, ellefta árið í röð appeared first on TRS ehf..

]]>

CREDITINFO hefur nú, ellefta árið í röð, tilkynnt að TRS ehf. falli í flokk „Framúrskarandi fyrirtækja“ 

TRS ehf. er í hópi um 2% íslenskra fyrirtækja sem falla í þennan flokk þetta árið, en það gera einungis tæplega 900 fyrirtæki af um 40.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi. TRS er nr. 164 í hópi meðalstórra fyrirtækja á listanum.

TRS ehf. er í hópi um 37 fyrirtækja sem hafa verið á þessum lista samfellt í ellefu ár, eða frá og með árinu 2012 

Grundvöllur þess að falla í flokk Framúrskarandi fyrirtækja er að

 

Að vera í flokki Framúrskarandi fyrirtækja, er viðurkenning á góðum, heilbrigðum  og traustum rekstri, sem ber að þakka öflugu starfsfólki og traustum viðskiptavinum.

The post TRS ehf. „Framúrskarandi fyrirtæki“, ellefta árið í röð appeared first on TRS ehf..

]]>
TRS óskar eftir öflugum rafvirkjum til starfa https://alfred.is/starf/rafvirki-103#new_tab Wed, 07 Sep 2022 14:01:15 +0000 https://www.trs.is/?p=8042 The post TRS óskar eftir öflugum rafvirkjum til starfa appeared first on TRS ehf..

]]>
The post TRS óskar eftir öflugum rafvirkjum til starfa appeared first on TRS ehf..

]]>
TRS óskar eftir öflugum kerfisstjóra https://alfred.is/starf/kerfisstjori-i-thjonustudeild-ut#new_tab Wed, 07 Sep 2022 13:59:47 +0000 https://www.trs.is/?p=8039 The post TRS óskar eftir öflugum kerfisstjóra appeared first on TRS ehf..

]]>
The post TRS óskar eftir öflugum kerfisstjóra appeared first on TRS ehf..

]]>
Log4j öryggisveikleiki https://www.trs.is/log4j-oryggisveikleiki/ Mon, 13 Dec 2021 08:55:46 +0000 https://www.trs.is/?p=7933 Vegna frétta í fjölmiðlum síðustu daga um alvarlegan öryggisveikleika í kóðasafni vill TRS koma eftirfarandi á framfæri. Frá því að veikleikinn kom upp þann 9. desember síðastliðinn hafa tæknimenn TRS unnið að því að lágmarka hugsanleg áhrif hans eins og kostur er í þeim tölvukerfum sem hýst og rekin eru af TRS. Búið er að […]

The post Log4j öryggisveikleiki appeared first on TRS ehf..

]]>

Vegna frétta í fjölmiðlum síðustu daga um alvarlegan öryggisveikleika í kóðasafni vill TRS koma eftirfarandi á framfæri.

Frá því að veikleikinn kom upp þann 9. desember síðastliðinn hafa tæknimenn TRS unnið að því að lágmarka hugsanleg áhrif hans eins og kostur er í þeim tölvukerfum sem hýst og rekin eru af TRS.

Búið er að takmarka aðgengi að þeim kerfum sem vitað er að veikleikinn nær til. Hugsanlegt er því að sumir viðskiptavinir verði varir við takmarkaða virkni á meðan unnið er að því að uppfæra þau.

Tæknimenn TRS fylgjast áfram náið með þróun mála og verður upplýst um stöðu mála eftir því sem tilefni er til.

Þeir viðskiptavinir sem óska eftir frekari upplýsingum eru hvattir til að hafa samband á hjalp@trs.is eða í síma 4803300

TRS ehf.
TRS er þjónustufyrirtæki sem hefur áratuga reynslu af rekstri tölvukerfa en við bjóðum upp á persónulega þjónustu sem er sérsniðin að þínum þörfum.
 
Öryggi er okkur hjartans mál en við bjóðum uppá ýmsar lausnir sem koma öryggismálum þínum á næsta stig. Skoðaðu öryggislausnir okkar hér.

The post Log4j öryggisveikleiki appeared first on TRS ehf..

]]>
Windows 11 – á ég að uppfæra? https://www.trs.is/windows-11-a-eg-ad-uppfaera/ Mon, 06 Dec 2021 13:58:27 +0000 https://www.trs.is/?p=7893 Nýlega leit Windows 11 dagsins ljós en stýrikerfið verður arftaki Windows 10 sem kom út fyrir sex árum síðan. Meðal nýjunga í Windows 11 má nefna að start-hnappurinn og verkstikan (e. taskbar) sitja nú fyrir miðju skjásins og fleiri möguleikar eru í boði fyrir uppröðun á gluggum (fyrir forrit sem styðja slíkt). Útlitið hefur fengið […]

The post Windows 11 – á ég að uppfæra? appeared first on TRS ehf..

]]>

Nýlega leit Windows 11 dagsins ljós en stýrikerfið verður arftaki Windows 10 sem kom út fyrir sex árum síðan. Meðal nýjunga í Windows 11 má nefna að start-hnappurinn og verkstikan (e. taskbar) sitja nú fyrir miðju skjásins og fleiri möguleikar eru í boði fyrir uppröðun á gluggum (fyrir forrit sem styðja slíkt). Útlitið hefur fengið yfirhalningu og er ferskara en þeir sem þekkja Windows 10 ættu samt að eiga auðvelt með að rata í Windows 11. Power Automate er innbyggt í Windows 11 en forritið gerir notendum kleift að búa til ferla (e. flows) með lágmarks forritunarkunnáttu. Sem dæmi væri hægt að búa til feril sem vistar skilaboð sjálfkrafa í OneNote, sendir tilkynningu þegar ný skjöl birtast í SharePoint o.fl. Framundan er síðan uppfærsla á versluninni (Microsoft Store) sem mun opna fyrir möguleika á að keyra Android-öpp á tölvunum. Auk þessa hefur öryggi stýrikerfisins verið beturumbætt og uppfært frá því sem menn þekkja úr Windows 10.

Windows 11 mun koma uppsett á öllum nýjum pc-tölvum innan tíðar en tölvur sem keyra Windows 10 geta sótt nýja stýrikerfið sem uppfærslu. Uppfærslan rúllar út á tölvurnar í hollum og hafa fyrstu hóparnir þegar fengið tilkynningu um að uppfærslan sé orðin aðgengileg. Aðrir munu fá slíka tilkynningu á næstu vikum og mánuðum. Það er rétt að benda á að eldri tölvur gætu lent í vandræðum með að keyra Windows 11 og því rétt að athuga fyrst hvort tölvan ráði við uppfærsluna áður en haldið er af stað.

Getur tölvan mín keyrt Windows 11?

Ef þú ert með nýlega pc-vél þá eru allar líkur á að hún geti keyrt Windows 11. Helstu lámarkskröfur fyrir Windows 11 eru:

1 GHz örgjörvi eða hraðari með minnst tveimur kjörnum

4 GB vinnsluminni

64 GB laust pláss á harða diskinum og meira fyrir uppfærslur í framtíðinni

UEFI og Secure boot

TPM (Trusted Platform Module) v2.0

High definition skjár sem er að lámarki 9 tommur horn í horn

Netsamband

Þú getur athugað hvort tölvan þín uppfyllir kröfurnar með því að opna PC Health Check-appið sem er innbyggt í Windows 10 (smelltu á stækkunarglerið eða leitarreitinn hjá start-hnappnum og skrifaðu PC Health). Appið skannar tölvuna og segir þá til um hvort lámarkskröfum er uppfyllt og tölvan geti keyrt Windows 11. Athugaðu samt að það gætu verið öpp og forrit uppsett á tölvunni þinni frá þriðja aðila sem virka illa eða alls ekki á Windows 11. Þessi forrit gætu þurft uppfærslu til virka. Eins ef þú ert með eldri tölvu má vera að hún sé ekki með TPM 2.0 sem er skilyrði fyrir Windows 11. TPM er búnaður sem er hannaður til að auka öryggi tölvunnar og gerir þjónustum á borð við BitLocker og Windows Hello kleift að keyra og sannreyna að stýrikerfið á tölvunni þinni sé eins og það á að vera.

Ef þú ert í vafa, heyrðu þá í sérfræðingum okkar áður en þú uppfærir tölvuna. Stjórnendur fyrirtækja og stofnananna eru einnig hvattir til að leita ráða hjá sérfræðingum áður en reynt er að uppfæra útstöðvar til að forðast ófyrirséð vandamál. Windows 10 verður stutt til 2025 svo það er enn nægur tími til gera ráðstafanir áður en Windows 10 verður orðið úrelt. Helstu rökin fyrir að uppfæra í Windows 11 eru öryggið á tölvunni og því er ekki úr vegi að fara að huga að uppfærslu eða í það minnsta kanna hvort vélbúnaðurinn ráði við það.

TRS er þjónustufyrirtæki sem hefur áratuga reynslu af rekstri tölvukerfa en við bjóðum upp á persónulega þjónustu sem er sérsniðin að þínum þörfum.
 
Öryggi er okkur hjartans mál en við bjóðum uppá ýmsar lausnir sem koma öryggismálum þínum á næsta stig. Skoðaðu öryggislausnir okkar hér.

The post Windows 11 – á ég að uppfæra? appeared first on TRS ehf..

]]>
TRS óskar eftir tæknimanni í viðhald á fjarksiptakerfum – Ljósleiðari https://alfred.is/starf/taeknimadur-ljosleidari#new_tab Wed, 24 Nov 2021 13:40:39 +0000 https://www.trs.is/?p=7890 The post TRS óskar eftir tæknimanni í viðhald á fjarksiptakerfum – Ljósleiðari appeared first on TRS ehf..

]]>
The post TRS óskar eftir tæknimanni í viðhald á fjarksiptakerfum – Ljósleiðari appeared first on TRS ehf..

]]>