TRS hlýtur viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2017 sjötta árið í röð.
Við erum afskaplega stolt af þessari viðurkenningu Creditinfo, enda aðeins 2,2% fyrirtækja á Íslandi sem eru í þessum hópi.
TRS ehf. er traust félag í góðum rekstri og hefur verið rekið með jákvæðri afkomu öll heil rekstrarár frá stofnun fyrirtækisins, eða í 22 ár.
Það að vera með góðan rekstur, að falla í þennan fríða flokk er ekki sjálfgefið og hefst einungis með samstilltu átaki starfsmanna, stjórnenda og tryggra viðskiptavina. Fyrir ykkar þátt í því þökkum við af alhug.