Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur samið við TRS um uppsetningu og rekstur á hýsingarumhverfi fyrir stofnunina ásamt kaupum á hundrað HP smávélum (Thin Clients).

Þetta sparar stofnuninni kaup á útstöðvum ásamt því að rekstrarkostnaður útstöðva lækkar til muna. Rafmagnsnotkun smátölvanna er eingöngu lítið brot af rafmagnsnotkun hefðbundinna útstöðva og mun því orkunotkun stofnunarinnar minnka til muna.

Hýsingarumhverfið byggir á sýndarvélum og gerir einnig alla stýringu umhverfisins mun einfaldari. Með þessari breytingu mun þjónusta við tölvukerfi HSU verða einfaldari og skilvirkari.

Smátölvur, eða Thin Clientar eru miðlunarbox inn í stórann miðlægann netþjón sem kemur í stað venjulegrar borðtölvu. Þær þurfa engar uppfærslur, varnir eða annan viðhaldsríkan hugbúnað sem sparar tíma og kostnað í rekstri tölvukerfis HSU. Svona sýndartölvur eru auk þess einfaldari búnaður en venjuleg tölva, sem gerir bilanatíðni minni, raforkunotkun minni eins og fyrr segir. Endingartími búnaðar er mun meiri, auk þess að vélin tekur lítið sem ekkert pláss.