Í haust hefur Menntaskólinn að Laugarvatni (ML) unnið að því að innleiða Office365, hýsingarþjónustu Microsoft með góðum árangri. Microsoft gaf út tilkynningu í vor um að allar menntastofnanir, starfsfólk, nemendur og kennarar, gætu nýtt sér þjónustuna án endurgjalds. ML notaði áður forvera Office365, þjónustu sem kallast Live@edu en ákveðið var í samstarfi við TRS að uppfæra í Office365 sem er mun fullkomnari.

Talið er fullvíst að ML sé fyrsti skólinn hér á landi til að taka upp Office365 í sínu umhverfi. Einnig er kerfið tengt hýsingarumhverfi TRS sem kallast Miðja.is svo sérfræðingar TRS geta stýrt þjónustunni miðlægt innan úr sínu eigin kerfi. Þessi tenging gerir það að verkum að hægt er að nota einn notanda og eitt lykilorð fyrir allt kerfið í heild til að skrá sig inn í útstöðvar í skólanum, inn á póstinn, innri vefinn, spjallkerfið og fleira.

Office365 fyrir skólaumhverfi samanstendur aðallega af þrem kerfum sem eru: pósthýsing (Exchange/Outlook), spjall- fjarfundar- og viðverukerfi (Lync) og vefkerfi (Sharepoint). Einnig er í boði lítil útgáfa af Microsoft Office pakkanum sem kallast Office Online. Nemendur, kennarar og starfsfólk ML geta því nýtt sér þessa þjónustu án endurgjalds og nálgast hana hvort sem er úr vinnuumhverfi, heima eða annarsstaðar. Allir þessir þættir Office365 auka möguleika ML til að nýta sér tæknina í kennslu en einnig skapast möguleiki til fjarkennslu ásamt því að spara umtalsverðar fjárhæðir vegna ókeypis hýsingar ýmissa þátta.